Vertu í liði með Ástjarnarkirkju
Ert þú og þínir nánustu skráð í Þjóðkirkjuna?
Margir telja að skírn og ferming dugi til skráningar en svo er ekki. Það tekur örskamma stund að kanna stöðuna hjá Þjóðskrá.

Skráningin getur breyst án þess að eftir því sé tekið
Fólk heldur oft að nóg sé að vera skírt og fermt af presti og þá sé skráningin sjálfkrafa í lagi.
Þannig er það ekki. Fyrir því geta legið ýmsar ástæður, svo sem tímabundin dvöl erlendis vegna náms eða starfa, sem veldur sjálfkrafa og óumbeðinni afskráningu.
Börn og trúfélag foreldra
Lög frá 2013 breyttu skráningarreglum nýbura.
Börn fylgja eingöngu trúfélagi foreldra ef báðir foreldrar eru í sama trúfélagi. Ef annað foreldrið er skráð í Þjóðkirkjuna og hitt í annað trúfélag þá skráist barnið í flokkinn ótilgreint trúfélag hjá Þjóðskrá.
Hvert fara sóknargjöldin?
Sóknargjöld eru hluti tekjuskatts sem einstaklingar greiða.
Sé viðkomandi ekki skráður í trú- eða lífsskoðunarfélag rennur upphæðin óskipt í ríkissjóð. Á árum áður runnu þau til Háskóla Íslands en því var breytt árið 2009.
Sóknargjöldin standa undir starfi Ástjarnarkirkju: helgihaldi, barna- og æskulýðsstarfi, tónlistarstarfi, starfi eldri borgara og sálgæslu.