Ástjarnarkirkja

Ástjarnarsókn var stofnuð árið 2001 og er ein yngsta sókn landsins. Kirkjan við Kirkjuvelli var vígð 8. október 2017.
Vellirnir, Hafnarfirði
Leiðarlýsing
Póstnúmer: 221
Kirkjuvöllum 1
Ástjarnarsókn var stofnuð 11. október 2001 á fundi í félagsheimili Hauka á Völlunum og bar fyrst vinnuheitið Vallasókn. Fyrsta guðsþjónustan var haldin þar í júní 2002 og um haustið var nafninu breytt í Ástjarnarsókn. Við sama tilefni voru Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn úr Vogum sameinaðar í eitt prestakall, Tjarnaprestakall.
Fyrstu árin var allur aðbúnaður til kirkjustarfs erfiður. Kirkjukór var stofnaður haustið 2004 af sjö konum úr sókninni og safnaðarblað hóf göngu sína ári síðar. Árið 2006 fékk sóknin úthlutaða lóð undir kirkju að Kirkjuvöllum 1 og bæjaryfirvöld buðu tvær færanlegar kennslustofur til bráðabirgða.
Árið 2007 var nýuppgerður kirkjuskáli Ástjarnarsóknar helgaður og safnaðarstarfið flutt í hann úr félagsheimili Hauka. Tveimur árum síðar var efnt til samkeppni um merki kirkjunnar og vann tillaga Péturs Baldvinssonar.
Samkeppni um hönnun safnaðarheimilis og umhverfis þess fór fram árið 2014 og þrjár af ellefu tillögum hlutu verðlaun. Samningur um hönnun var undirritaður í febrúar 2015, jarðvegsframkvæmdir hófust um sumarið og fyrsta skóflustungan var tekin í nóvember. Arkitektar hússins eru Björn Guðbrandsson, Hulda Sigmarsdóttir, Aðalsteinn Snorrason og Egill Guðmundsson.
Safnaðarheimilið var afhent í ágúst 2017 og Ástjarnarkirkja var vígð 8. október sama ár af biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur.
Kirkjugripirnir hafa bæst við smám saman. Nýjar altarisgrindur voru teknar í notkun árið 2019, nýr prédikunarstóll og kross í altarisgarðinum árið 2021 og nýr skírnarfontur árið 2022. Alla gripina hannaði og smíðaði Tómas Bergþór Þorbjörnsson.

Merki Ástjarnarkirkju
Merki Ástjarnarkirkju varð til í samkeppni árið 2009. Tillaga Péturs Baldvinssonar grafísks hönnuðar bar sigur úr býtum.