Ferming
Í fermingunni staðfestir þú skírnina þína og segir já við því að eiga samleið með Jesú.
Umsjón með fermingarstarfinu hafa prestar Ástjarnarkirkju, sr. Arnór Bjarki og sr. Bolli Pétur.

Fermingarfræðslan
Dagskrá vetrarins 2026 til 2027 er komin út, sett fram með fyrirvara um breytingar.
Fræðslan er á þriðjudögum: 1. og 15. september, 6. og 20. október, 3. og 17. nóvember, 1. desember, 19. janúar, 2. og 16. febrúar og próf 2. mars.
Árleg söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar er 3. nóvember og árleg fermingarfræðsluferð í Vatnaskóg er 5. til 6. nóvember.
Minnisvers
Hvert fermingarbarn velur sér minnisvers og gefur presti upp staðsetningu þess í Biblíunni.
Prestar kirkjunnar hafa tekið saman tillögur að minnisversum og aðstoða við valið.
Skráning og gjaldskrá
Skráning fer fram í gegnum skráningarform kirkjunnar.
Fermingarfræðsla kostar 24.148 kr. Nánari upplýsingar veita prestar kirkjunnar, arnor@astjarnarkirkja.is og bolli@astjarnarkirkja.is.