Veislusalur og útleiga
Salurinn í Ástjarnarkirkju er hentugur fyrir veisluhöld, stóra fundi, ráðstefnur, tónleika og önnur mannamót.
Inga Rut Hlöðversdóttir kirkjuvörður veitir nánari upplýsingar og tekur við bókunum í síma 694-3089 eða á inga@astjarnarkirkja.is.

Salurinn
Eldhús kirkjunnar er vel tækjum búið og nýtist með salnum.
Salurinn hentar jafnt fyrir erfidrykkjur og brúðkaupsveislur sem fundi, ráðstefnur og tónleika.
Verðskrá
Lágmarksgjald fyrir fyrstu fjórar klukkustundirnar er 66.000 kr.
Fyrstu fjórar klukkustundirnar: 66.000 kr. sem er lágmarksgjald.
Hver klukkustund umfram fjórar: 12.000 kr.
Smærri fundahöld, til dæmis húsfundir: 20.000 kr. klukkustundin, lágmarksleigutími tvær klukkustundir.
Frágangur og þrif á salnum kosta 10.000 kr. og fara fram eftir hvern viðburð.
Starfsfólk með salnum
Öllum útleigum fylgir starfsmanneskja sem hefur umsjón með eldhúsi og öðru sem snýr að salnum.
Starfsmanneskja kostar 7.000 kr. fyrir hverja klukkustund. Ef gestir eru 65 eða fleiri fylgja tveir starfsmenn og ef þeir eru fleiri en 90 þá þrír.
Staðfestingargjald og bókun
Til að tryggja salinn greiðir leigutaki 10.000 kr. staðfestingargjald sem er óafturkræft.
Reikningur: 0140-26-1243
Kennitala: 421101-3530
Senda þarf kvittun úr heimabanka á inga@astjarnarkirkja.is og hafa dagsetningu salarleigu í skýringu, til dæmis leiga 17.09.
Nánari upplýsingar og bókanir veitir Inga Rut Hlöðversdóttir kirkjuvörður í síma 694-3089 eða á inga@astjarnarkirkja.is.